Einfalt, fljótlegt og gott hljómar vel á aðventunni! Þessar pestóstangir passa vel fyrir alls kyns tilefni!
Namm!

Pestóstangir
Um 12 stykki
- 1 x tilbúin pizzadeigkúla (250 g)
- ½ krukka rautt Filippo Berio pestó + 1 msk
- Rifinn ostur
- 1 egg
- Sesamfræ
- 3 msk. sýrður rjómi
- 1 msk. sítrónusafi
- Hitið ofninn í 200°C.
- Fletjið pizzadeigið út í c.a 30×30 cm.
- Smyrjið það með pestó og setjið rifinn ost á helminginn.
- Klemmið hinn helminginn yfir ostinn, þjappið aðeins saman og skerið í ræmur.
- Snúið upp á hverja ræmu og leggið á bökunarpappír á ofnplötu.
- Pískið eggið og penslið stangirnar, stráið smá sesamfræjum yfir.
- Bakið í 12-15 mínútur eða þar til stangirnar gyllast.
- Pískið á meðan saman sýrðan rjóma, 1 msk. af pestó og sítrónusafa, dýfið síðan nýbökuðum pestóstöngum í þessa ídýfu.

Pestó gerir lífið einfaldlega betra.

Pestóstangir, ídýfa og áfengislaus bjór eru fullkomin þrenna í skammdeginu!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.


































