Ef ykkur vantar eitthvað nýtt og gómsætt á ostabakkann eða í forrétt eitt og sér með góðu kexi þá verðið þið að prófa þennan dásamlega þeytta fetaost!
Mmmm….

Þeyttur fetaostur með hátíðarsultu
Þeyttur fetaostur
- 300 g fetakubbur
- 3 msk. jómfrúarolía
- 3 msk. rjómi
- 1 msk. appelsínusafi
- 1 tsk. salt
- ½ tsk. pipar
- Setjið allt saman í blandara og maukið þar til mjúk og slétt áferð myndast.
- Það þarf að skafa nokkrum sinnum niður á milli.
- Dreifið síðan úr ostinum á fallegt fat/disk áður en þið setjið toppinn á.
Toppur
- ½ krukka Hot Pepper Cranberry Jelly frá Stonewall Kitchen (um 180 g)
- 1 krukka Holiday Jam frá Stonewall Kitchen (113 g)
- 1 lúka pistasíukjarnar
- 1 lúka pekanhnetur
- Börkur af ½ appelsínu
- Smyrjið sultunum yfir, saxið hneturnar og rífið að lokum appelsínubörkinn yfir allt.
- Njótið með uppáhalds Stonewall Kitchen kexinu ykkar.

Sulturnar frá Stonewall Kitchen eru eitthvað annað góðar og mig langaði til að prófa þær allar….lét tvær duga!

Mæli með að þið prófið þessa uppskrift!



































