Matcha molar



⌑ Samstarf ⌑
matcha molar

Janúar er mættur í öllu sínu veldi og margir sem taka heilsuna fastari tökum á þessum tíma sem er bara frábært! Þessa mola gerði ég í haust en var aldrei búin að setja hingað inn fyrir ykkur svo mér fannst tilvalið að hefja nýtt ár með þessari uppskrift!

Mmmmm….

hollustubitar

Matcha molar

Um 15 stykki

  • 170 g Ísey skyr með vanillubragði
  • 250 g jarðarber
  • 2 msk. chiafræ
  • 250 g hvítt súkkulaði
  • 1 tsk. kókosolía
  • 2 tsk. matcha duft
  1. Skerið jarðarberin niður í litla bita og blandið saman við Ísey skyr og chiafræ.
  2. Setjið um 1 msk. af blöndu á bökunarpappír fyrir hvern bita og í frystinn í klukkustund eða lengur.
  3. Bræðið næst hvítt súkkulaði, þynnið með kókosolíu og hrærið vel saman áður en þið bætið matcha duftinu saman við og hrærið aftur vel.
  4. Dýfið hverjum bita í súkkulaðið, gott er að nota tvo gaffla og leggja bitana aftur á bökunarpappírinn.
  5. Gott er að geyma bitana í frysti en þeir geymast einnig vel í kæli í nokkra daga.
skyrmolar með matcha

Ísey skyrið hentar fyrir hinar ýmsu uppskriftir og stefni ég að því að bralla eitthvað fleira heilsusamlegt og gott fyrir ykkur á næstunni!

hollt nammi
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun