Yngsta dóttir mín elskar Mac&Cheese. Við höfum prófað þónokkrar útfærslur af slíkum rétti en best þykir henni einföld ostasósa líkt og hér. Við sáum svipaða hugmynd á Instagram um daginn og hún hætti ekki að tala um þetta fyrr en hún og vinkona hennar fengu að þróa þessa uppskrift með mér.
Hér í þessu myndbandi höfum við því sérlega góða 8 ára aðstoðarkokka sem stóðu sig með prýði við eldamennskuna!

Mac&Cheese lasagna
Hakkfylling
- 600 g nautahakk
- 1 laukur
- 1 krukka Heinz pastasósa með basil
- 3 msk. Hunt‘s tómatpaste
- 100 ml vatn
- 1 msk. oregano krydd
- Salt og pipar eftir smekk
- Ólífuolía til steikingar
- Saxið laukinn smátt og steikið stutta stund við meðalhita upp úr olíu, saltið og piprið.
- Bætið hakkinu á pönnuna, hækkið hitann og steikið í gegn.
- Bætið tómatpaste og pastasósu saman við ásamt vatni, hrærið vel og leyfið aðeins að malla.
- Kryddið eftir smekk.
Makkarónu-ostafylling og samsetning
- 350 g macaroni pasta
- 90 g smjör
- 3 msk. hveiti
- 500 ml nýmjólk
- 200 ml rjómi
- 250 g cheddar ostur
- 250 g mozzarella ostur
- 80 g Parmareggio Reggiano ostur
- 1 msk. Oscar nautakraftur fljótandi
- Salt og pipar eftir smekk
- Ostur til að rífa yfir réttinn
- Hitið ofninn í 180°C.
- Sjóðið makkarónupastað.
- Bræðið smjörið við meðalhita og hrærið hveitið síðan saman við þar til kekkjalaust.
- Hellið þá mjólk og rjóma saman við og blandið vel saman, hækkið aðeins hitann.
- Rífið allar tegundir af osti og blandið saman við.
- Bragðbætið með nautakrafti, salti og pipar.
- Hellið pastanu saman við ostablönduna.
- Hellið makkarónufyllingunni í botninn á eldföstu formi og dreifið næst úr hakkblöndunni.
- Stráið rifnum osti yfir allt og setjið í ofninn í 15 mínútur.
- Gott er að bera réttinn fram með fersku salati og góðu brauði.

Góð pastasósa í bland við ostasósuna, namm!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!



































Sæl og takk fyrir frábæra síðu 🙂
Hvenær setur þú macaronurnar út í?
Kveðja Harpa
Hæ,hæ Harpa
Soðið makkarónupasta fer saman við ostasósuna þegar hún er tilbúin.