Þetta „trend“ var í gangi fyrir einhverjum árum síðan en ég hoppaði aldrei á vagninn þá svo nú fannst mér sannarlega kominn tími til að endurvekja þessi sniðugheit. Amerískar pönnukökur eru eitt það allra besta og að raða þeim svona saman með ýmiss konar áleggi er frábær og falleg leið til að bera þær fram!
Namm!

Pönnukökubakki
Um 20 stykki pönnukökur
- 250 g Stonewall Kitchen Pancake & Waffle Mix
- 250 ml nýmjólk
- 2 egg
- 50 g brætt smjör
- Stonewall Kitchen Wild Maine Blueberry Jam
- Stonewall Kitchen Raspberry Peach Champagne Jam
- Stonewall Kitchen Maine Maple Syrup
- Súkkulaði – og hnetusmjör
- Ávextir að eigin val
- Pískið saman egg og mjólk í skál.
- Bætið pönnukökuduftinu saman við og loks bræddu smjörinu.
- Hrærið vel saman og leyfið deiginu að standa í 5-10 mínútur á borðinu áður en þið steikið pönnukökurnar.
- Deigið dugar í um 20 litlar pönnukökur sem fallegt er að raða í „slöngu“ á disk/bakka og fylla síðan uppí með sultum, súkkulaðismjöri, sýrópi og girnilegum ávöxtum.

Stonewall Kitchen pönnukökumixið er frábærlega gott og fljótlegt að skella í pönnsur þegar maður á svona í skúffunni.

Þetta sýróp er það allra besta, sýróp er sko alls ekki það sama og sýróp, verðið að prófa!

Nokkrum númerum of gott!


































