Ef þig langar að taka taco kvöldið upp á næsta stig þá er þessi hér útfærsla algjör lúxus!
Svo ferskt og gott!

Risarækju taco
Fyrir um 4 manns (12 stykki)
Risarækjur eldun
- 800 g risarækjur
- 3 hvítlauksrif
- 2 chilli
- 2 msk. kóríander
- 50 g smjör
- ½ flaska Pineapple Ginger Sauce frá Stonewall Kitchen
- Hvítlaukssalt + sítrónupipar
- Affrystið, skolið og þerrið rækjurnar vel.
- Saxið hvítlauk, chilli og kóríander og steikið ásamt rækjunum upp úr bræddu smjörinu, kryddið eftir smekk.
- Steikið þar til rækjurnar verða bleikar að utan og bætið þá Pinapple Ginger sósunni á pönnuna og leyfið rækjunum að malla örfáar mínútur í sósunni.
- Raðið næst taco-inu saman.
Annað hráefni og samsetning
- 12 x mini tortilla vefjur
- Rósakál (1 haus)
- Rauðlaukur (1 stk)
- Avókadó (3 stór)
- Mango Lime Salsa frá Stonewall Kitchen
- Habanero Mango Aioli frá Stonewall Kitchen
- Kóríander til að setja yfir
- Hitið vefjurnar og skerið grænmetið niður á meðan.
- Raðið síðan saman á eftirfarandi máta: rósakál í botninn, næst rauðlaukur og avókadó. Síðan Mango Lime Salsa, rækjur, Habanero Mango Aioli (sett í sprautu eða skeið notuð) og loks toppað með kóríander.

Risarækjur í þessari sósu hér eru svoooo góðar!

Þessi salsasósa er síðan öðruvísi en sú klassíska og passar ótrúlega vel með!

Síðan var ég með klassísku salsasósuna með ásamt nachos flögum.



































