Það styttist í páskana og skúffukaka er eitthvað sem allir elska! Hér er djúsí útgáfa af slíkri með lúxus smjörkremi sett í páskabúning.
Namm!

Skúffukaka með súkkulaði smjörkremi
Skúffukaka uppskrift
- 230 g hveiti
- 90 g bökunarkakó
- 250 g sykur
- 90 g púðursykur
- 2 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. matarsódi
- ½ tsk salt
- 260 g súrmjólk
- 170 g ljós matarolía
- 3 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 100 ml uppáhellt heitt kaffi
- 150 ml heitt vatn
- Hitið ofninn í 175°C .
- Setjið bökunarpappír í skúffukökuform (um 25 x 35 cm) og spreyið að innan með matarolíuspreyi.
- Setjið þurrefnin í hrærivélarskálina og blandið saman.
- Vigtið súrmjólk og matarolíu í skál og pískið saman ásamt eggjum og vanilludropum.
- Hellið súrmjólkurblöndunni saman við þurrefnin og hrærið á lágum hraða.
- Bætið þá kaffi og vatni saman við, skafið niður og hrærið þar til slétt deig myndast.
- Hellið í skúffukökuformið og bakið í 25-30 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á, ekki blautu deigi.
- Kælið áður en þið setjið kremið á.
Súkkulaði smjörkrem uppskrift og skreyting
- 280 g smjör við stofuhita
- 260 g flórsykur
- 50 g bökunarkakó
- 100 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)
- 2 tsk. vanilludropar
- 2 msk. kaffi (uppáhellt)
- ½ tsk. salt
- 4 x Nóa Síríus páskaegg nr. 1
- Nóa Bíókropp
- Nóakropp
- Kökuskraut og fersk blóm
- Þeytið smjörið í nokkrar mínútur þar til það verður létt í sér. Skafið nokkrum sinnum niður á milli.
- Bætið þá flórsykri og bökunarkakó saman við og hrærið aðeins, setjið svo restina af hráefnunum útí.
- Þeytið stutta stund,skafið niður á milli og smyrjið svo yfir kökuna.
- Skreytið með litlum Síríus páskaeggjum nr. 1, Bíó Nóakroppi, Nóakroppi, smá pastel kökuskrauti og ferskum blómum.

Það þarf ekki meira en þessi litlu krúttlegu páskaegg til að gera hvaða köku sem er páskalega.

Svo má fylla þau með Nóakroppi!



































