Grískar pítur með kjúklingi



⌑ Samstarf ⌑
Grísk píta

Hvernig hljómar kvöldmatur á kortéri? Þessar einföldu pítur með grísku ívafi eru ótrúlega góðar og öll fjölskyldan kunni vel að meta þessa fljótlegu máltíð!

Mæli svo mikið með!

Grísk píta

Grískar pítur með kjúklingi

Hráefni í 2 x stórar (fyrir 2-4 manns)

  • 2 x Liba flatbrauð
  • Um 300 g eldaður kjúklingur (ég notaði tilbúna kebab strimla en það má nota hvaða kjúkling sem er)
  • Chovi Allioli hvítlausdressing
  • Romaine salat
  • Piccolo tómatar
  • Agúrka
  • Rauðlaukur
  • Fetaostur (valkvætt)
  1. Hitið/eldið kjúklinginn á pönnu.
  2. Skerið grænmetið niður.
  3. Hitið Liba brauðið á pönnu á háum hita í stutta stund sitthvoru megin.
  4. Smyrjið með Chovi Allioli og setjið vel af kjúklingi og grænmeti á annan helminginn á brauðinu.
  5. Klemmið síðan saman með hinum helmingnum og skerið í tvennt.
  6. Hvert flatbrauð er frekar stórt og ég myndi segja það jafnist á við tvö hefðbundin pítubrauð.
píta með kjúkling

Það passar mjög vel að smyrja vel af Chovi Allioli yfir botninn!

pítubrauð

Þessi flatbrauð eru síðan svo góð!

Grísk píta
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun