Þórunn vinkona kom okkur á bragðið með rjómaost, sweet chili og kóríander fyrir ansi mörgum árum og er það auðvitað einfaldasti partýréttur allra tíma. Ég tók í rauninni þá hugmynd og bætti örlítið við hana og þetta er svo frábærlega gott og fljótlegt að þið verðið að gera þetta fyrir næsta partý eða veislu!
Namm!

Rjómaostabakki
- 1 x Philadelphia rjómaostur með Sweet Chili
- 4-5 msk. sweet-chili sósa
- 3 x vorlaukur (saxaður)
- 2 msk. kóríander
- ½ jalapeno (saxað)
- Mini tuc kex original
- Smyrjið úr rjómaostinum á disk/fat.
- Hellið sweet-chilli sósunni yfir og toppið með vorlauk, kóríander og jalapeno.
- Njótið með mini tuc kexi.

Það passar mjög vel að hafa bragðbættan rjómaost í þessum rétti!

Mini Tuc kexið passar síðan fullkomlega með þessu!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.


































