Það er endalaust hægt að leika sér með marengs. Nú um helgina er tilvalið að útbúa páskalegan eftirrétt sem bráðnar í munni líkt og þessi hér.
Namm!

Marengskrans með súkkulaðirjóma
Marengskrans
- 4 eggjahvítur
- 1 tsk. kartöflumjöl
- 1 tsk. hvítvínsedik
- 200 g sykur
- 1 tsk. vanilludropar
- Hitið ofninn í 110°C og teiknið um 20 cm hring á bökunarpappír.
- Pískið eggjahvítur, kartöflumjöl og hvítvínsedik saman í hrærivélinni þar til blandan fer aðeins að freyða.
- Bætið sykrinum þá saman við í nokkrum skömmtum og þeytið þar til allur sykur er uppleystur.
- Bætið vanilludropunum saman við í lokin og hrærið áfram stutta stund.
- Setjið blönduna í sprautupoka með stórum stjörnustút og sprautið 8 marengshreiður eftir hringnum sem þið teiknuðuð. Gott að sprauta botninn fyrst og síðan upp kantinn til að búa til rými fyrir súkkulaðirjómann í miðjunni.
- Ef það er afgangur af marengsblöndu þá má sprauta stök hreiður eða marengstoppa úr afganginum.
- Bakið í 2 klukkustundir og slökkvið á ofninum, leyfið marengskransinum að kólna niður með honum.
Súkkulaðirjómi og skreyting
- 4 eggjarauður
- 50 g flórsykur
- 100 g suðusúkkulaði (brætt)
- 350 ml þeyttur rjómi frá Gott í matinn
- Lítil súkkulaði páskaegg
- Þeytið saman eggjarauður og flórsykur þar til blandan verður ljós og þykk.
- Blandið þá bræddu súkkulaði saman við með sleikju.
- Súkkulaðiblandan má að lokum blandast saman við þeytta rjómann með sleikju og fyllið marengshreiðrin með henni. Allt í lagi þó súkkulaðirjóminn fara vel upp fyrir holuna.
- Skreytið með litlum súkkulaði páskaeggjum eða öðru páskalegu.

Rjómi gerir lífið einfaldlega betra!



































