Quiche baka



⌑ Samstarf ⌑
eggjakaka

Hér er á ferðinni dásamleg eggjabaka með smjördeigsbotni. Einfalt að útbúa og fullkomin fyrir brönsinn eða sem kvöldverður.

Svo gott!

eggjabaka

Quiche baka – uppskrift

  • 1 x upprúllað „Puff Pastry“ eða smjördeig
  • 6 x beikonsneiðar
  • 1 x laukur
  • ¼ brokkolihaus
  • 8 egg
  • 200 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 50 g rifinn cheddar ostur frá Gott í matinn
  • 100 g rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
  • Smjör til steikingar
  • Salt, pipar og hvítlauksduft
  • Vorlaukur
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Smyrjið bökuform vel að innan með smjöri.
  3. Rúllið deiginu yfir og komið því fyrir í forminu og þrýstið upp hliðarnar. Klípið deig af til þess að þekja alveg botninn og kantana, þjappið því saman með fingrunum.
  4. Steikið beikonið þar til það er stökkt og skerið niður.
  5. Steikið lauk og brokkoli upp úr smjöri, kryddið eftir smekk og dreifið úr grænmetinu yfir smjördeigsbotninn.
  6. Pískið næst saman egg, rjóma og osta, kryddið eftir smekk og hellið yfir grænmetið.
  7. Leggið álpappír yfir og bakið í 40 mínútur, fjarlægið þá álpappírinn og bakið áfram í um 10 mínútur eða þar til toppurinn fer að gyllast.
  8. Leyfið að standa í 10-15 mínútur áður en þið skerið í sneiðar og toppið með niðurskornum vorlauk.
eggjakaka með osti

Ostur gerir allar eggjakökur betri!

Quiche baka
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun