Túnfisksalat með gulum baunum



⌑ Samstarf ⌑
túnfisksalat

Það er endalaust hægt að koma með nýjar útfærslur af túnfisksalati! Við elskum gular baunir og ég mátti til með að prófa þetta sumarlega túnfisksalat og varð sannarlega ekki fyrir vonbrigðum!

Mmm…

túnfisksalat

Túnfisksalat með gulum baunum

  • 1 x dós ORA túnfiskur í vatni
  • 1 x lítil dós ORA gular baunir
  • 4 harðsoðin egg
  • ½ laukur (saxaður)
  • 2 msk. grísk jógúrt
  • 2 msk. majónes
  • Salt, pipar og Aromat
  • Finn Crisp snakk að eigin vali
  1. Hellið vatninu af túnfisknum og setjið hann í skál ásamt gulu baununum.
  2. Skerið eggin með eggjaskera og setjið í skálina ásamt lauk, grískri jógúrt og majónesi.
  3. Kryddið eftir smekk og blandið öllu vel saman.
  4. Njótið með Finn Crisp snakki.
túnfisksalat

Mæli með að þið prófið!

túnfisksalat

Að sjálfsögðu má skipta majónesinu út fyrir meira af grískri jógúrt til að gera salatið enn hollara!

túnfisksalat

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun