Sumarsalat með grilluðum humri



⌑ Samstarf ⌑
Humarsalat

Sumarið er á næsta leyti og þetta salat er æðislega ferskt og gott! Einnig er góð tilbreyting að grilla fisk, rækjur, humar og annað slíkt í bland við kjötið á næstunni.

Namm!

Humarsalat

Sumarsalat með grilluðum humri

Fyrir um 4 manns

  • 800 g skelflettur humar
  • ½ flaska Caj P grillolía með hvítlauk
  • Romaine salat
  • 2 x avókadó
  • 500 g jarðarber
  • Blaðlaukur
  • Ristaðar furuhnetur
  • Heinz Ceasar dressing
  • Hvítlauksbrauð
  1. Byrjið á því að skola, hreinsa og þerra humarinn, setjið í skál.
  2. Hellið Caj P grillolíunni yfir og blandið vel saman við með sleikju, leyfið að marinerast á meðan annað er undirbúið (lengur líka í lagi).
  3. Skerið niður grænmeti ásamt jarðarberjum og skiptið niður í 4 skálar, toppið með humri, dressingu og furuhnetum og berið fram með hvítlauksbrauði.
Humarsalat

Það er einföld lausn að setja Caj P grillolíu á grillmatinn til að gefa honum gott bragð! Það má í raun nota þessa olíu á allt sem hugurinn girnist, hvort sem það er kjöt, fiskur eða grænmeti, það verður allt betra með Caj P.

Humarsalat

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun