Frönsk súkkulaðikaka



⌑ Samstarf ⌑
Frönsk súkkulaðikaka

Það er nákvæmlega ekkert sem getur klikkað hér! Klassísk frönsk súkkulaðikaka slær alltaf í gegn og þessi er dásamlega góð!

Frönsk súkkulaðikaka

Frönsk súkkulaðikaka uppskrift

  • 4 egg
  • 390 g sykur
  • 200 g smjör
  • 200 g suðusúkkulaði
  • 190 g hveiti
  • 2 tsk. vanillusykur
  • ½ tsk. salt
  1. Hitið ofninn í 175°C og setjið bökunarpappír í botninn á um 22-24 cm smelluformi, spreyið það síðan vel að innan með matarolíuspreyi.
  2. Bræðið saman smjör og súkkulaði og leyfið hitanum að rjúka úr á meðan annað er undirbúið.
  3. Þeytið saman egg og sykur.
  4. Hellið súkkulaðibráðinni saman við í mjórri bunu og hrærið saman við á hægum hraða.
  5. Bætið loks þurrefnunum saman við og blandið stutt saman.
  6. Hellið í formið og bakið í 50 mínútur (m.v 22 cm form, það má stytta bökunartímann um 5-10 mín fyrir 24 cm form).
  7. Kælið kökuna síðan alveg áður en þið takið hana úr forminu, útbúið kremið á meðan.

Krem og skreyting

  • 120 g suðusúkkulaði
  • 50 g smjör
  • 3 msk. sykur
  • 1 msk. bökunarkakó
  • 2 msk. sýróp (í grænu dósunum)
  • 30 ml rjómi
  • Þeyttur rjómi til að bera fram með
  • Ber að eigin vali til að skreyta
  1. Saxið suðusúkkulaðið gróft og leggið til hliðar.
  2. Setjið smjör, sykur, bökunarkakó, sýróp og rjóma í pott og hitið að suðu, hrærið vel í allan tímann.
  3. Lækkið hitann þá niður og hrærið í nokkrar mínútur þar til slétt og samfelld súkkulaðibráð hefur myndast og sykurinn er bráðinn.
  4. Bætið nú saxaða suðusúkkulaðinu saman við og hrærið þar til það bráðnar.
  5. Kælið blönduna þar til hún þykknar (tekur um 20 mínútur), gott að hræra í henni reglulega allan tímann og þegar blandan minnir á þykka karamellusósu má smyrja henni yfir kökuna og kæla hana aftur.
  6. Þegar kremið hefur náð að stífna á kökunni má skreyta hana með berjum og bera fram með þeyttum rjóma.
Frönsk súkkulaðikaka

Allt hráefni í þessa uppskrift fæst í Hagkaup!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun