Kjúklingaskál með hvítlauksdressingu



⌑ Samstarf ⌑
fljótlegur kvöldmatur

Það er einfalt að koma með útfærslur af hollum kjúklingaréttum. Hér er búið að raða saman einföldum og næringarríkum hráefnum og toppa með hvítlauksdressingu úr grískri jógúrt, svo hollt og gott!

Namm!

kjúklingaréttur

Kjúklingaskál með hvítlauksdressingu

Fyrir um 4 manns

Kjúklingaskál uppskrift

  • 4 x grilluð kjúklingabringa
  • 3 litlar sætar kartöflur
  • 1 lítill haus brokkoli
  • Brún hrísgrjón (soðin)
  • Hvítlauksdressing (sjá uppskrift að neðan)
  • Hvítlauks grillolía
  • Salt, pipar, hvítlauksduft
  • Ólífuolía

  1. Flysjið sætar kartöflur, skerið í teninga og bakið í 200°c heitum ofni í um 30 mínútur eða þar til þær eru mjúkar í gegn.
  2. Skerið brokkoli í munnstóra bita, veltið upp úr ólífuolíu og kryddum eftir smekk og bakið í ofninum samhliða kartöflunum.
  3. Sjóðað á meðan hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  4. Penslið kjúklingabringurnar með grillolíu og grillið þar til tilbúnar.
  5. Raðið saman á disk og toppið með hvítlauksdressingu eða berið hana fram í lítilli skál til hliðar.

Hvítlauksdressing uppskrift

  • 170 g grísk jógúrt frá Gott í matinn
  • 2 msk. ólífuolía
  • 2 msk. hunang
  • 2 tsk. dijon hunangs sinnep
  • 3 x hvítlauksgeiri (rifinn)
  • 1 msk. kóríander (saxað)

  1. Pískið öllu saman í skál og geymið í kæli fram að notkun.

Það er einfalt að útbúa holla dressingu með salati með grískri jógúrt.

hollur kvöldmatur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun