Kjúklingavængir á þrjá vegu



⌑ Samstarf ⌑
wings at home

Ef þið viljið vera með vængjakvöld heima þá er þetta algjör snilld!

Mæli svooooo mikið með!

chicken wings

Kjúklingavængir á þrjá vegu

Fyrir 4-5 manns

  • Um 3 kg kjúklingavængir
  • ½ flaska Sticky Garlic Wing Sauce frá Stonewall Kitchen
  • ½ flaska Buffalo Wing Sauce frá Stonewall Kitchen
  • ½ flaska Hot Honey Wing Sauce frá Stonewall Kitchen
  • Kjúklingakrydd
  • Ólífuolía
  1. Hitið ofninn í 200°C og takið til 3 ofnskúffur/eldföst mót.
  2. Skerið vængina í sundur á liðamótunum svo þið endið með þrjá hluta, hendið minnsta hlutanum og raðið hinum tveimur í ofnskúffu/eldfast mót (skiptið niður eftir sósutegundum).
  3. Setjið smá ólífuolíu yfir og vel af kjúklingakryddi, veltið vængjunum upp úr þessu og setjið í ofninn í 30 mínútur.
  4. Takið þá vængina út örskamma stund, hellið sósunum yfir (í sitthvoru lagi), veltið aftur og eldið að nýju í 10 mínútur. Það má einnig setja smá auka sósu yfir vængina eftir eldun ef þið viljið.
  5. Gott er að bera vængina fram með frönskum kartöflum og gaman að skreyta með sesamfræjum, vorlauk, ristuðum chillihnetum eða öðru sem ykkur dettur í hug. Einnig er gott að hafa gráðostasósu með buffaló vængjunum og hvítlaukssósu með hinum.
kjúklingavængir

Þessar sósur eru hver annarri betri!

buffaló vængir

Namm!

asískir vængir

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun