Sykurpúða hrískökur með Bíókroppi



⌑ Samstarf ⌑
rice krispies sykurpúðakökur

Ég kalla hrískökur úr bræddum sykurpúðum alltaf amerískar Rice Krispies kökur. Þegar við bjuggum í Bandaríkjunum kom ég eitt sinn með þessar klassísku íslensku með suðusúkkulaði á leikskólann og kennararnir voru alveg að missa sig yfir þeim. Ég útbjó því uppskrift af þeim á ensku fyrir þær sem ég skírði „Rice Krispies Treats from Elín Heiða“ og sendi þær í Whole Foods til að kaupa Síríus suðusúkkulaði frá Nóa Síríus því ég sagði það væri lykilhráefni, hahaha! Ég verð að segja að bæði sé einfaldlega betra og gaman að skiptast á og hafa fjölbreytni í þessu.

Mmmm!

hrískökur uppskrift

Sykurpúða hrískökur með Bíókroppi

16 stykki

  • 60 g smjör
  • 260 g mini sykurpúðar
  • 140 g Rice Krispies
  • ½ poki Bíókropp frá Nóa Síríus + meira til skrauts
  • 50 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)
  • Matarolíusprey
  1. Klæðið um 25 x 25 cm kökuform að innan með bökunarpappír og spreyjið næst með smá matarolíuspreyji svo auðveldara verði að ná kökunni úr til að skera hana í bita. 
  2. Bræðið smjör í potti við vægan hita og blandið sykurpúðunum saman við. Hrærið þar til þeir hafa bráðnað saman við smjörið og loftkennd blanda myndast.
  3. Takið af hellunni og hrærið Rice Krispies og Bíókroppi saman við.
  4. Setjið nú blönduna yfir í kökuformið og þjappið niður með glasi/öðru með flötum botni, gott er að setja smá matarolíusprey á botninn svo hann klístrist síður við.
  5. Þjappið niður eins og þið getið og sléttið úr toppnum, kælið síðan í um 30 mínútur áður en þið skerið í bita.
  6. Bræðið suðusúkkulaðið og drisslið yfir eitt hornið og stingið einu Bíókroppi í miðjuna á því, látið storkna áður en þið njótið.
rice krispies kökur

Bíókroppið kemur með smá súkkulaðifíling í kökurnar og þetta var ótrúlega góð blanda!

rice krispies kökur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun