Einfaldar ídýfur slá alltaf í gegn. Þessi hér rífur aðeins í og er virkilega góð. Fullkomin fyrir sumarpartý, saumaklúbbinn eða kósýkvöldið.

Ostadýfa með chilli
- 1 x Ostakubbur frá Gott í matinn (250 g)
- 100 g rjómaostur frá Gott í matinn
- 2 msk. hunang (+ meira ofan á)
- 2 hvítlauksrif
- 1 msk. jalapeño úr krukku
- 2 tsk. Chilli Crisp í olíu
- 1 lúka ristaðar furuhnetur
- Setjið ostakubb, rjómaost og hunang í blandarann.
- Rífið hvítlauksrifin, saxið jalapeño og setjið saman við, blandið öllu vel þar til hægt er að smyrja úr blöndunni á disk.
- Toppið með chilli crisp, smá meira hunangi og ristuðum furuhnetum.
- Njótið með góðu kexi eða brauði.

Svo gott!



































