BBQ svínakótilettur



⌑ Samstarf ⌑
grillkjöt

Einfalt og sumarlegt grill sem kitlar bragðlaukana!

Mmmm…

salat með melónu

BBQ svínakótilettur

Fyrir um 4 manns

  • 4-6 svínakótilettur
  • ½ flaska Heinz Sweet BBQ sósa
  • 2 msk. Heinz tómatsósa
  • Grillkrydd að eigin vali
  • 4 bakaðar kartöflur (+ smjör og salt)
  • Maísbaunir (+ smjör og salt)
  • Salat (spínat, vatnsmelóna, bláber, rauðlaukur, ostakubbur mulinn)
  • Köld piparsósa
  1. Blandið BBQ og tómatsósu saman í skál.
  2. Hellið um 2/3 af sósunni yfir kótiletturnar og leyfið þeim að marinerast. Geymið restina þar til síðar. Það má gera þetta deginum áður en síðan má líka gera þetta um leið og þið setjið á grillið, bara það sem hentar best. Bragðið verður bara aðeins meira ef maður leyfir þeim að marinerast í kæli í nokkrar klukkustundir en kótiletturnar verða líka mjög góðar þó maður hafi ekki tíma fyrir slíkt.
  3. Bakið kartöflurnar, undirbúið salatið og hitið gulu baunirnar með smjöri + salti.
  4. Grillið kótiletturnar í um 5 mín á hvorri hlið og penslið með restinni af BBQ blöndunni þegar þær koma af grillinu.
  5. Njótið með öllu góða meðlætinu og kaldri piparsósu.

Uppáhalds BBQ sósunni minni blandað með smá tómatsósu og útkoman er ansi ljúffeng.

Namm!

sumargrill

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun