Súkkulaði bollakökur með poppi



⌑ Samstarf ⌑
bollakökur með súkkulaði smjörkremi

Þetta voru mögulega BESTU bollakökur sem sögur fara af og ekki skemmir fyrir að skreyta þær svona skemmtilega með ljúffengu poppi!

Nokkrum númerum of góðar!

bollakökur uppskrift

Súkkulaði POPP-bollakökur

Um 20 stk

Bollakökur uppskrift

  • 1 x súkkulaði kökumix (ég notaði Betty Crocker Devils Food Cake Mix)
  • 4 egg
  • 120 ml ljós matarolía
  • 250 ml vatn
  • 2 msk. bökunarkakó
  • 1 x Royal súkkulaðibúðingur (duftið)
  1. Hitið ofninn í 160°C og takið til um 20 bollakökuform (ég set alltaf pappaform í álform til að kökurnar haldi lögun sinni).
  2. Hrærið saman egg, olíu og vatn.
  3. Bætið bökunarkakói og kökumix duftinu saman og og hrærið í um 2 mínútur.
  4. Í lokin má síðan setja búðingsduftið saman við og hræra stutta stund saman.
  5. Setjið deigið í stóran zip-lock poka og klippið um 2 cm gat á hornið á pokanum (eða notið ísskeið eða annað sem ykkur finnst þægilegt).
  6. Fyllið um 2/3 af formunum og bakið í um 20 mínútur, kælið síðan alveg áður en þið setjið krem og popp á.

Súkkulaði smjörkrem og skreyting

  • 300 g smjör (við stofuhita)
  • 500 g flórsykur
  • 4 msk. bökunarkakó
  • 100 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)
  • 2 msk. uppáhellt kaffi (kælt)
  • 2 tsk. vanilludropar
  • ¼  tsk. salt
  • 1 poki Nóa popp
  1. Þeytið smjörið þar til það verður létt og ljóst.
  2. Bætið flórsykri, bökunarkakó, bræddu smjöri, vanilludropum og kaffi saman við og blandið vel saman.
  3. Að lokum má setja saltið og brædda suðusúkkulaðið og hræra vel.
  4. Setjið í sprautupoka með stórum stjörnustút og sprautið kremi upp í spíral á hverja köku.
  5. Þekjið síðan krem-spíralinn með Nóa poppi.
bollakökur

Mæli með að þið prófið að skreyta kökur með þessu skemmtilega poppi!

súkkulaði bollakökur

Mmm….

chocolate cupcakes

Það er gaman að setja bollakökur í svona auka pappír til að bera þær fram en þennan pappír pantaði ég á Amazon, hef hins vegar líka keypt svona einlitan pappír í Allt í köku.

súkkulaði bollakökur

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun