Sumarlegur og fullkominn eftirréttur sem kitlar bragðlaukana!
Namm!

Tiramisu með sítrónukexi
- 2 pk. Frón kremkex með sítrónukremi
- 4 eggjarauður
- 140 g flórsykur
- 500 g mascarpone ostur við stofuhita
- 1 x vanillustöng (fræin)
- 500 ml þeyttur rjómi (skipt í 150 og 350)
- Sítrónusýróp (sjá uppskrift að neðan)
- 2 msk. lemon curd
- Blóm til skreytingar
- Byrjið á því að útbúa sítrónusýrópið og leyfið því að ná stofuhita á meðan annað er undirbúið.
- Takið til ferkantað form (um 25 x 25).
- Þeytið eggjarauður og flórsykur saman þar til blandan verður létt og ljós.
- Bætið þá mascarpone osti + vanillustöng saman við og þeytið aðeins áfram.
- Vefjið um 150 ml af rjómanum saman við blönduna.
- Dýfið kexinu í sýrópið og raðið í botninn á forminu (brjótið til eftir stærð formsins).
- Setjið ½ af mascarpone blöndunni yfir kexið og sléttið úr, endurtakið svo úr verði tvö eins lög.
- Smyrjið um 2 msk. af lemon curd yfir miðjuna á toppnum (skiljið 2-3 cm eftir í köntunum) en einnig má setja lemon curd yfir hana alla ef þið viljið.
- Setjið restina af þeytta rjómanum í sprautupoka með fíngerðum, stórum stjörnustút og sprautið toppa allan hringinn með kantinum og fyllið inn í hornin, skreytið með blómum.
- Kælið í að minnsta kosti 4 klst. eða yfir nótt í ísskáp.
Sítrónusýróp uppskrift
- 200 ml vatn
- 200 g sykur
- 2 sítrónur (safinn og smá börkur)
- Setjið allt í pott, hitið að suðu og lækkið síðan hitann.
- Hrærið vel í þar til sykurinn er bráðinn, hellið yfir í grunna skál og leyfið að ná stofuhita áður en þið dýfið kexunum í.

Það er svo gaman að prófa eitthvað nýtt þegar það kemur nýtt kex á markaðinn!



































