„Brownies“ með tvöföldu súkkulaði



⌑ Samstarf ⌑
brúnkur með súkkulaði

Það er fátt betra en djúsí „brownies“ og þessar hérna eru dásamlega góðar!

Namm!

chocolate brownies

Brownies með tvöföldu súkkulaði

  • 170 g smjör
  • 100 g Síríus suðusúkkulaði ( brætt)
  • 330 g sykur
  • 3 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 130 g hveiti
  • 80 g bökunarkakó
  • ½ tsk. salt
  • 100 g Síríus suðusúkkulaði (saxað)
  • 100 g Síríus rjómasúkkulaði (saxað)
  1. Hitið ofninn í 170°C og klæðið ferkantað kökuform (um 25 x 25 cm) að innan með bökunarpappír (svo hægt sé að lyfta kökunni upp).
  2. Bræðið saman smjör og 100 g suðusúkkulaði og leyfið að rjúka úr blöndunni á meðan annað er undirbúið.
  3. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós, bætið þá vanilludropum og smjörblöndunni varlega saman við.
  4. Næst má sigta hveiti, kakó og salt í skálina og blanda rólega saman við.
  5. Að lokum fer saxaða súkkulaðið (báðar tegundir) í skálina og blandið létt saman.
  6. Hellið í formið og bakið í um 30-35 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
súkkulaði brownies

Suðusúkkulaði er eitt af því sem er ALLTAF til í bökunarskúffunni minni og gerir einfaldlega gott betra!

brownies

Svo góðar!

brownie
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun