Sítrónu bollakökur



Sítrónu bollakökur
Berglind

Sítrónu bollakökur

Þrátt fyrir að ég sé gjarnan að eyða miklum tíma í kökuskreytingar þá elska ég einfaldleikann inn á milli.
Þessar sítrónu-bollakökur með glassúr galdrast fram án fyrirhafnar og eru ofsalega krúttaralegar og sætar — já og sumarlegar!
Skammtur: 12 bollakökur

Hráefni
  

Bollakökur:
  • – 2 egg
  • – 250 ml mjólk
  • – 80 g smjör brætt og kælt
  • – 1 sítróna börkur rifinn
  • – 260 g hveiti
  • – 1,5 tsk lyftiduft
  • – 120 g sykur
Glassúr:
  • – 300 g flórsykur
  • – 2-3 msk vatn
  • – 1/2 tsk sítrónusafi eða 2-3 sítrónudropar
  • – Matarlitur valfrjálst

Aðferð
 

Bollakökur:
  1. Hrærið egg stutta stund.
  2. Blandið mjólk og kældu bræddu smjöri varlega saman við.
  3. Bætið sítrónuberki út í.
  4. Blandið hveiti, lyftiduft og sykri saman í annarri skál.
  5. Bætið þurrefnum varlega saman við smátt og smátt.
  6. Bakið við 200°C í 10-15 mínútur — varist að ofbaka!
Glassúr:
  1. Hrærið flórsykur saman við vatn.
  2. Bætið sítrónusafa (eða dropum) við.
  3. Stillið þykkt eftir smekk — meira vatn gefur þynnri glassúr.
  4. Bætið matarlit ef óskað er.

Sólarkveðja,
Berglind

Deila uppskriftinni

Tags:

2 Replies to “Sítrónu bollakökur”

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Recipe Rating




Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun