Vörur
Vefverslun á www.gotteri.is er opin allan sólarhringinn alla daga ársins.
Lögð er áhersla á að sýna fjölbreyttar myndir af vörum í mismunandi umhverfi til að gefa góða sýn á útlit hennar.
Verð, skattar og gjöld
Öll verð í netverslun eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Virðisaukaskattur er 24% á almennum vörum en 11% á matvælum og bókum. Vinsamlegast athugið að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara.
Verð er birt með fyrirvara um prentvillur og áskilja Gotterí og gersemar sér rétt til að ljúka ekki viðskiptunum ef rangt verð hefur verið gefið upp. Við látum viðskiptavini vita ef vara sem hefur verið pöntuð er ekki til á lager og bjóðumst til að senda hana um leið og hún kemur aftur á lager.
Ef vara er ekki til á lager til lengri tíma munu Gotterí og gersemar endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla farið fram.
Sendingarmöguleikar og kostnaður
Hægt er að fá vöruna senda gegn gjaldi. Íslandspóstur sér um að senda vörurnar og fer sendingargjald eftir verðskrá þeirra. Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.
Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.
Afhendingartími
Afhendingartími er miðaður við 2–7 virka daga eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað.
Skilafrestur og endurgreiðsla
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er varan endurgreidd. Ef meira en 14 dagar eru frá vörukaupum getur kaupandi skipt vörunni fyrir aðra vöru eða fengið inneignarnótu. Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. Inneignarnótur er ekki hægt að nota á útsölu.
Gölluð vara
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Öryggi
Það er öruggt að versla í netverslun Gotterí og gersema. Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar. Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál.
Persónuupplýsingar
Gotterí mun aðeins nota persónuupplýsingar viðskiptavina netverslunar í tilgangi sem samrýmist þeim sem var upphaflega fyrir söfnun þeirra. Dæmi um slíkan tilgang er:
- Til að hægt sé að skrá nýjan viðskiptavin
- Til að afgreiða og senda pantanir til viðskiptavina
- Vegna framkvæmdar á viðskiptasambandi við viðskiptavini
- Til að bæta netverslun, vöru/þjónustu, markaðssetningu og viðskiptasamband
- Til að bjóða viðskiptavinum vöru eða þjónustu sem gæti höfðað til þeirra
Gotterí miðlar eingögnu persónuupplýsingum til þriðja aðila í þeim tilfellum þar sem það er nauðsynlegt til að afhenda þá vöru eða þjónustu sem keypt var. Til dæmis svo póstsendingar komist til skila.
Gotteri.is notar vafrakökur til að auka notendaupplifun, og til að styðja við frekari þróun síðunnar. Notendur sem vilja kom í veg fyrir vafrakökur, geta breytt vafrakökustillingum í sínum varfa (browser).
Ef þú vilt að þínum persónuupplýsingum sé eytt, sendu þá formlega beiðni á gotteri@gotteri.is og við afgreiðum beiðnina eins fljótt og auðið er.
Greiðsluform
Í netverslun Gotterí og gersema er boðið upp á að greiða með greiðslukorti eða debetkorti í gegnum örugga greiðslugátt Borgunar. Netverslunin samþykkir Visa, MasterCard, American Express, JCB, Union Pay, Discover Card og Diners Club greiðslukort.
Upplýsingar um seljanda
Gotterí og gersemar er bloggsíða með ýmsum upplýsingum auk vefverslunar. Vefverslunin er rekin af Gotterí og gersemum/Hermanni Hermannssyni. Vefverslunin fór í loftið á haustmánuðum 2020 en heimasíðan www.gotteri.is hefur verið starfandi síðan árið 2013.
Kt. 600521-0200
Netfang: gotteri@gotteri.is
Laxatunga 22, 270 Mosfellsbær
Símanúmer: 6959293
Vefsíða: www.gotteri.is
Vsk nr: 65963
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Skilmálar þessir gilda frá 1.september 2020.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin.