Þrátt fyrir að ég sé gjarnan að eyða miklum tíma í kökuskreytingar þá elska ég einfaldleikann inn á milli. Þessar sítrónu-bollakökur með glassúr galdrast fram án fyrirhafnar og eru ofsalega krúttaralegar og sætar — já og sumarlegar!
Keyword bakstur, bollakökur
Servings 12bollakökur
Author Berglind
Ingredients
Bollakökur:
- 2 egg
- 250 ml mjólk
- 80 g smjörbrætt og kælt
- 1 sítrónabörkur rifinn
- 260 g hveiti
- 1,5tsk lyftiduft
- 120 g sykur
Glassúr:
- 300 g flórsykur
- 2-3 msk vatn
- 1/2 tsk sítrónusafieða 2-3 sítrónudropar
- Matarliturvalfrjálst
Instructions
Bollakökur:
Hrærið egg stutta stund.
Blandið mjólk og kældu bræddu smjöri varlega saman við.
Bætið sítrónuberki út í.
Blandið hveiti, lyftiduft og sykri saman í annarri skál.
Bætið þurrefnum varlega saman við smátt og smátt.
Bakið við 200°C í 10-15 mínútur — varist að ofbaka!
Glassúr:
Hrærið flórsykur saman við vatn.
Bætið sítrónusafa (eða dropum) við.
Stillið þykkt eftir smekk — meira vatn gefur þynnri glassúr.