Kjúklingabringur í rjómasósu



⌑ Samstarf ⌑
kjúklingabringur í rjómasósu

Ofnbakað grænmeti, kjúklingur og djúsí rjómasósa er klassík. Hér var ég að prófa að nota rjómaost með svörtum pipar og útkoman var algjörlega dásamleg.

kjúklingabringur með sósu

Kjúklingabringur í rjómasósu

Uppskrift fyrir um 4 manns

  • Um 700 g kjúklingabringur (3-4 stk eftir stærð)
  • 200 g rjómaostur með svörtum pipar frá Gott í matinn
  • 500 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 msk. púðursykur
  • 1 msk. soyasósa
  • 1 msk. sítrónusafi
  • Salt, pipar og hvítlauksduft
  • Ólífuolía og smjör til steikingar
  • Ofnbakað grænmeti eftir smekk
  1. Skerið niður það rótargrænmeti sem ykkur þykir gott, setjið vel af ólífuolíu og kryddum yfir. Setjið inn í ofn við 190°C í um 40 mínútur.
  2. Skerið því næst bringurnar langsum í tvo hluta.
  3. Steikið þær upp úr blöndu af smjöri og ólífuolíu og brúnið vel allar hliðar, klárið síðan að elda þær með grænmetinu í ofninum í 15-20 mínútur.
  4. Notið sömu pönnu til að steikja hvítlauksrifin, bætið smá olíu og smjöri fyrst á pönnuna.
  5. Hellið þá rjóma og rjómaosti yfir og pískið þar til kekkjalaus sósa hefur myndast.
  6. Bragðbætið með púðursykri, soyasósu, sítrónusafa og kryddum.
rjómasósa uppskrift

Mmmm, mæli með að þið prófið!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun