Ég rakst á svipaða hugmynd á netinu og eftir að ég prófaði að gera súkkulaði chiabúðing um daginn varð ég að prófa að gera jarðarberja líka. Það er hægt að leika sér með bragðtegundir og þessi var virkilega fersk og góð!

Þið getið einnig prófað að setja aðra ávexti en þessi grautur var ekki lengi að hverfa á þessu heimili.

Jarðarberja chiagrautur
Fyrir um 4 manns
- 200 g jarðarber
- 1 banani
- 30 g haframjöl
- 1 msk. kókosmjöl
- 1 msk. hlynsíróp
- 350 ml léttmjólk frá MS
- 50 g chiafræ
- Setjið allt nema chiafræ í blandarann og blandið vel saman.
- Hellið í skál, hrærið chiafræjunum saman og og geymið í ísskáp í að minnsta kosti 3 klukkustundir (eða yfir nótt).
- Setjið grautinn síðan í skálar og toppið með því sem hugurinn girnist. Hér notaði ég gríska jógúrt, jarðarber og smá saxað dökkt súkkulaði.

Mmm…


























