Daim kökupinnar



Á dögunum var þessi guðdómlega uppskrift í fermingarblaði Fréttatímans og áttaði ég mig á því að ég var aldrei búin að setja hana hingað inn. Ég útbjó bæði dökka og ljósa kökupinna og verð ég að segja að þeir ljósu nutu meiri vinsælda þó svo báðir væru frábærlega góðir.

daim 1

Dökkir kökupinnar

  • 30 kökukúlur (blanda af súkkulaðiköku og vanillukremi)
  • 2 pokar smátt saxað Daimkurl sem er sett útí kökublönduna áður en henni er rúllað í kúlur.
  • Dökkt hjúpsúkkulaði/Candy Melts
  • Kökupinnaprik
  • Saxað Daim til skrauts.

Ljósir kökupinnar

  • 30 kökukúlur (blanda af vanilluköku og vanillukremi)
  • 2 pokar smátt saxað Daimkurl sem er sett útí kökublönduna áður en henni er rúllað í kúlur.
  • Ljóst hjúpsúkkulaði/Candy Melts
  • Kökupinnaprik
  • Saxað Daim til skrauts.

Það er alltaf gaman að nota mismunandi prik þegar kökupinnar eru útbúnir og er ég með algjört æði fyrir papparörum þessa dagana.

aa061

Þeir sem hafa áhuga á að læra hvernig kökupinnar eru útbúnir geta kíkt á námskeið og er einmitt eitt slíkt næsta miðvikudag, 9.apríl og enn er laust pláss.

 

 

3 Replies to “Daim kökupinnar”

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun