Saltkjöt og baunir



⌑ Samstarf ⌑
saltkjöt og baunir túkall

„Saltkjöt og baunir, túkall!“ Sprengidagurinn er á þriðjudaginn og margir sem taka forskot á sæluna um helgina svo ég ákvað að skella þessari inn fyrir ykkur!

Það er algjör óþarfi að mikla baunasúpugerð fyrir sér, það þarf ekki að leggja baunirnar í bleyti frekar en þið viljið og þetta er alls ekki flókin eldamennska!

saltkjöt og baunir uppskrift

Saltkjöt og baunir uppskrift

Fyrir um 6 manns

  • 2 kg saltkjöt
  • 5 sneiðar Ali beikon
  • 1 laukur
  • 400 g gular baunir
  • 2 l vatn
  • 1 grænmetisteningur (kraftur)
  • 600 g gulrófur
  • 600 g gulrætur
  • 600 g kartöflur
  • Smjör til steikingar
  1. Byrjið á því að saxa lauk og skera beikon í litla bita og steikja upp úr smjöri þar til það mýkist.
  2. Bætið þá baununum í pottinn ásamt vatni og grænmetiskrafti og hrærið vel saman. Náið upp suðunni og lækkið síðan hitann og leyfið að sjóða í um klukkustund. Veiðið froðuna ofan af fyrstu 15-20 mínúturnar.
  3. Setjið næst saltkjötið í annan pott og náið upp suðunni, lækkið niður hitann og leyfið að malla í um 1,5 klukkustund, veiðið froðuna af í byrjun suðu.
  4. Flysjið á meðan rófur og gulrætur og skerið niður í munnstóra bita og sjóðið kartöflurnar í sér potti.
  5. Bætið rófum og gulrótum síðan út í baunasúpuna þegar hún hefur mallað í um klukkustund og sjóðið í 30-40 mínútur í viðbót eða þar til grænmetið mýkist. Hér getið þið smakkað súpuna til og bætt í hana meiri grænmetistening eða salti ef ykkur finnst þurfa.
  6. Njótið baunasúpunnar með saltkjöti og kartöflum.
beikon í baunasúpu

Ég steiki beikon og lauk í smjöri áður en ég bæti baunum, vatni og krafti í baunasúpupottinn og með því kemur gott bragð í súpuna og óþarfi að sjóða í henni kjötbita en ef þið viljið sterkara bragð getið þið hins vegar gert það. Ef þið kjósið að gera það er alveg nóg að sjóða einn slíkan með henni og hina áfram í öðrum potti.

baunasúpa og saltkjöt
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun