Þegar þú breytir snakki í nammi!
Ég mátti til með að prófa Pringles+súkkulaði og þetta er algjör snilld. Ég var búin að sjá mikið af myndböndum á netinu þar sem staukurinn er fylltur upp með súkkulaði, látið harðna og síðan skorið niður en mér finnst þetta miklu girnilegra svona! Fullkomið nammisnakk og sniðugt til að bjóða uppá í veislum eða kósýkvöldinu.
Einfalt og svo skemmtilegt!

Pringles með súkkulaði
- 1 x Pringles staukur original
- 200 g Síríus suðusúkkulaði
- 200 g Síríus rjómasúkkulaði
- Síríus súkkulaðiperlur
- Eitt sett lakkrískurl
- Bræðið báðar tegundir af súkkulaði í sitthvorri skálinni.
- Takið um lúku af súkkulaðiperlum og lakkrískurli og saxið smátt niður á sitthvoru brettinu.
- Dýfið síðan Pringles flögunum til skiptis í dökkt og ljóst súkkulaði og toppið með súkkulaðiperlum og lakkrískurli.

Þetta var ekki lengi að hverfa á mínu heimili!



































