Bakaður Brie er eitt það allra besta og hér er klárlega búið að taka slíkt á næsta stig. Brie bitar sem búið er að velta upp úr pistasíuhjúp og steikja, toppaðir með rifsberjum og chilli hunangi. Þetta var svo dásamlega gott og fullkomið fyrir næsta saumaklúbb, boð eða til að njóta á aðventunni.
Mmmm….

Stökkir Brie-bitar
18 bitar
- 2 x Bónda Brie ostur
- 1 egg
- 40 g Panko rasp
- 50 g pistasíukjarnar
- 2 tsk. saxað ferskt rósmarín
- ½ tsk. salt
- ½ tsk. pipar
- 2 msk. chilli hunang
- Rifsber
- Olía (grænmetis) til steikingar
- Byrjið á því að skera rúnnaða hlutann af ostinum og útbúa ferhyrning úr honum. Skerið hvorn ost um sig í 9 bita svo úr verði 18 bitar samtals (gott að njóta afskurðarins með kexi og sultu á meðan bitarnir bíða í frystinum).
- Setjið bitana í frysti í 10-15 mínútur.
- Pískið egg í eina skál og saxið pistasíukjarnana smátt niður.
- Blandið raspi, pistasíum, rósmarín, salti og pipar saman í aðra skál (geymið smá pistasíur til að strá yfir í lokin).
- Takið bitana úr frystinum, veltið upp úr eggjablöndu og næst pistasíublöndu, endurtakið og hjúpið þannig hvern bita 2 x, setjið aftur í frystinn í um 10 mínútur.
- Hitið olíu á lítilli pönnu og gott er að hún nái upp um 1 cm frá botninum, hafið á meðalháum hita.
- Steikið síðan hvern bita í um 1-2 mínútur á hvorri hlið eða þar til þeir gyllast að utan , snúið varlega við með töng og leggið síðan á eldhúspappír til að fitan leki vel af þeim.
- Raðið síðan bitunum á disk og setjið chilli hunang, rifsber og smá pistasíur yfir.

Bónda Brie hentar fullkomlega til að bitarnir verði ekki of stórir.



































