Kalkúnabringa, kartöflugratín og fylltir sveppir



⌑ Samstarf ⌑
Kalkúnabringa

Ég elska þegar það er hægt að stytta sér leið í veisluundirbúningi án þess að það komi niður á gæðunum! Eins mikið og mér finnst gaman að vera heilu dagana í eldhúsinu þá er stundum ekki tími fyrir slíkt. Hér er ég að vinna með sous vide kalkúnabringu frá Ali sem er svo frábærlega góð og mjög auðvelt að elda!

Best er að byrja á því að undirbúa kartöflugratínið og koma því í ofninn. Næst er gott að gera sveppina tilbúna og setja þá inn með gratíninu síðasta kortérið. Á meðan gratínið er í ofninum má síðan græja kalkúnabringuna og leggja á borðið.

Kalkúnn og meðlæti

Kalkúnabringa, kartöflugratín og fylltir sveppir

Fyrir um 5 manns

Kalkúnabringa eldun

  • 1 x Ali Sous Vide kalkúnabringa
  • Smjör til steikingar
  1. Hitið vatn í potti að suðu og slökkvið undir.
  2. Takið bringuna úr álbakkanum og leggið í plastinu í heitt vatnið, leyfið henni að liggja þar í 20 mínútur.
  3. Takið þá uppúr og úr plastinu, steikið upp úr smjöri þar til allar hliðar hafa brúnast.

Kartöflugratín

  • Rúmt kíló af sætum kartöflum
  • 50 g smjör
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 msk. saxað rósmarín
  • 650 ml rjómi
  • Salt og pipar
  • 100 g rifinn ostur
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Flysjið kartöflurnar og rífið/skerið niður í 2-3 mm þykkar sneiðar (ég notaði mandólín).
  3. Raðið þeim upp á rönd í eldfast mót svo þær fylli lauslega mótið.
  4. Bræðið smjörið í potti og steikið hvítlaukinn í því stutta stund.
  5. Bætið rósmarín og rjóma í pottinn og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
  6. Hellið yfir kartöflurnar, leggið álpappír lauslega yfir og bakið í ofninum í 40 mínútur.
  7. Takið þá út úr ofninum, álpappírinn af og dreifið ostinum yfir, bakið áfram í um 15 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.

Fylltir sveppir

  • 25 sveppir (um það bil 350-400 g)
  • 7 sneiðar Ali beikon (stökkt)
  • 200 g rjómaostur
  • 40 g parmesan ostur (rifinn)
  • 2 hvítlauksrif (rifin)
  • 1 msk. steinselja (söxuð) + meira til skrauts
  • Salt og pipar
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Fjarlægið stilkinn innan úr sveppunum og raðið þeim í eldfast mót/ofnskúffu.
  3. Eldið beikonið þar til það er stökkt og saxið niður.
  4. Setjið um helminginn af beikoninu í skál ásamt rjómaosti, parmesan, hvítlauk og steinselju, blandið vel saman og kryddið eftir smekk.
  5. Fyllið sveppina og setjið síðan restina af beikonkurlinu yfir.
  6. Bakið í um 15 mínútur og skreytið með smá steinselju.
Meðlæti með kalkún

Ég get ekki mælt nægilega með þessum kalkúnabringum, þær eru algjör snilld!

Fylltir sveppir með beikoni

Fylltu sveppirnir koma með aukið bragð inn í máltíðina og síðan er rjómakennt kartöflugratínið í raun bæði kartöflur og sósa á sama tíma svo þessi máltíð er frekar einföld um leið og hún er afar ljúffeng.

Kartöflugratín og kalkúnn

Djúsí og góðar!

Kalkúnabringa og meðlæti
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun