Kjúklingaleggir í undursamlegri sósu



⌑ Samstarf ⌑
hvað á að vera í matinn?

Ef ykkur langar í súper einfaldan um leið og súper góðan kvöldverð þá verðið þið að prófa þennan rétt!

Namm!

kjúklingaleggir í ofni

Kjúklingaleggir í undursamlegri sósu

Fyrir um 4 manns

Kjúklingaleggir í ofni

  • 2 pakkar kjúklingaleggir (um 12 stykki)
  • Kjúklingakrydd
  • Garlic Rosemary Citrus Sauce frá Stonewall Kitchen
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Setjið kjúklingaleggina í eldfast mót/ofnskúffu.
  3. Kryddið þá með kjúklingakryddi og hellið svo allri sósuflöskunni yfir leggina.
  4. Bakið í 40-45 mínútur eða þar til leggirnir eru steiktir í gegn. Gott að skera í stærsta bitann til að sjá hvort hann sé tilbúinn.

Bakaðar sætar kartöflur

  • Um 1 kg sætar kartöflur
  • Ólífuolía
  • 1 krukka fetaostur
  • 2 lúkur ristaðar furuhnetur
  • Salt, pipar og hvítlauksduft
  1. Flysjið kartöflurnar og skerið í munnstóra bita.
  2. Setjið í ofnskúffu og drisslið vel af matarolíu yfir þær.
  3. Kryddið eftir smekk og blandið vel saman.
  4. Bakið í um 35 mínútur, takið út og dreifið úr fetaostinum yfir allt (ekki nota alla olíuna samt, bara það litla sem kemur með skeiðinni).
  5. Bakið aftur í um 15 mínútur eða þar til kartöflurnar eru mjúkar í gegn.
  6. Stráið furuhnetum yfir í lokin og berið fram með kjúklingaleggjunum og góðu brauði.
kjúlli í ofni

Eins og allt frá Stonewall Kitchen þá er þessi sósa ferðalag fyrir bragðlaukana og tekur hversdagslega kjúklingaleggi á æðra plan!

kvöldmatur hugmyndir

Að blanda fetaosti og furuhnetum saman við bakaðar sætar kartöflur er síðan svoooo gott!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun