Hér kemur heitur kartöfluréttur með skinku og kartöfluflögutoppi sem fullkomnar hann og gefur gott kröns!
Mmmm…..

Kartöfluréttur með krönsi
Fyrir 4-5 manns
Kartöfluréttur uppskrift
- 1,2 kg bökunarkartöflur
- 70 g smjör
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 dós „cream of chicken súpa“ 400 g
- 100 g sýrður rjómi
- 3 msk. Heinz majónes
- 300 ml rjómi
- 400 g skinka
- 130 g cheddar ostur rifinn
- Salt og pipar
- Hitið ofninn í 180°C.
- Flysjið kartöflurnar og skerið í litla teninga (c.a 1×1 cm), setjið í smurt eldfast mót.
- Saxið laukinn og steikið við meðalhita upp úr smjörinu, bætið hvítlauknum við í lokin og hellið síðan súpunni, sýrðum rjóma, majónesi og rjóma saman við, blandið vel og kryddið eftir smekk.
- Að lokum má skera skinkuna í litla bita og blanda saman við, hella síðan öllu saman yfir kartöflurnar ásamt cheddar ostinum og blanda öllu vel saman.
- Bakið í ofninum í um 50 mínútur eða þar til kartöflurnar eru nánast tilbúnar.
- Setjið þá kröns toppinn (sjá hér að neðan) yfir og aftur inn í ofn í um 10 mínútur.
Kröns toppur
- 50 g brætt smjör
- 100 g Maarud Creamy onion snakk
- 30 g rifinn parmesanostur
- Blandið öllu saman í skál rétt áður en setja á yfir kartöfluréttinn og bakið í um 10 mínútur.

Þessar nýju Maarud flögur eru svo góðar!

Corona 0% er síðan mesti snilldar bjórinn! Þú getur sannarlega verið með í stemmingunni án áfengis!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































