Sól veitingastaður



Í útjaðri Hafnarfjarðar á undurfallegri lóð við Óseyrarbraut stendur einstakur veitingastaður sem heitir Sól og er staðsettur í stóru gróðurhúsi. Það eru tvenn hjón, þau Brjánn og Guðrún Auður ásamt Sölva og Björk sem eiga og reka þennan veitingastað og það er nokkuð ljóst að hér hefur verið nostrað við hvern einasta fermeter.

Veitingastaðurinn stendur á glergólfi yfir sjálfu gróðurhúsinu svo gestir njóta bæði frábærs matar og drykkjar ásamt því að upplifa þessa fallegu hönnun. Það er því sannarlega upplifun fyrir öll skilningarvitin að heimsækja Sól.

Veitingastaðurinn er opinn á kvöldin miðvikudaga til föstudaga og síðan er einnig boðið upp á dögurð um helgar. Við vinkonurnar kíktum þangað um daginn og smökkuðum ýmsa gómsæta rétti og fengum undraverða og fallega kokteila sem verða að kallast einstakir og sérlega vandaðir.

Það er sannarlega hægt að gleyma stund og stað á Sól en við sátum þar í nokkrar klukkustundir, spjölluðum og nutum góðs matar.

Það er erfitt að gera upp á milli rétta en mínir uppáhalds voru burrata og tómatar, tyrknesk egg og skonsurnar! Kjúklingasalatið var líka guðdómlegt og mysingur með bláberjum og lakkrís í eftirrétt trylltu bragðlaukana og er allt öðruvísi en allt sem þið hafið smakkað, eiginlega verðið að prófa!

Við vinkonurnar kaupum oft alls kyns rétti af matseðli og deilum síðan því það er svo gaman að fá að smakka alls konar líkt og við gerðum í þessari heimsókn.

Þetta hér er mysingurinn, sem bragðast í raun alls ekki eins og mysingur heldur eitthvað úr töfraheimi!

Drykkirnir voru hver öðrum fallegri!

Ég gat ekki hætt að mynda þessa fegurð og allt var þetta líka svo ofboðslega bragðgott og skemmtilegt að smakka mismunandi drykki!

Tyrknesk egg eða „turkish eggs“ er réttur sem allir verða að smakka!

Tómatar og burrata með brauðteningum var mitt uppáhald, enda elska ég burrata ost og þessar litlu krúttlegu kúlur eru snilld!

Það er klárt mál að þennan veitingastað mun ég heimsækja aftur og mæli sannarlega með því að þið gerið ykkur glaðan dag innan borgarmarkanna á þessum dásamlega stað!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun