Einfalt, fljótlegt og ljúffengt er flokkurinn sem þessi uppskrift fellur undir! Taco Tuesday má hafa alls kyns birtingarmyndir að mínu mati og allt með mexíkósku ívafi má prófa! Með því að setja franskarnar undir verður nachosið matarmeira og bbq sósan gerir það einstaklega djúsí.
Mmm….

BBQ nachos í ofni
Fyrir um 4 manns
- 450 g sætkartöflufranskar
- 450 g eldaður kjúklingur
- 200 g Heinz Sweet BBQ sósa
- Nachos flögur
- ½ rauðlaukur
- 4 msk. svartbaunir
- 4 msk. gular baunir
- Smá jalapeno úr krukku
- Rifinn ostur
- Lime og kóríander yfir í lokin
- Hitið ofninn í 210°C.
- Dreifið úr frönskunum (ég notaði einn poka af frosnum sætkartöflufrönskum) á ofnskúffu/eldfast mót, bakið í um 18 mínútur og undirbúið annað á meðan.
- Skerið niður kjúklinginn, ég notaði eldað kjúklingalærakjöt en það má nota hvað sem er. Blandið honum saman við bbq sósuna.
- Skerið laukinn í strimla og undirbúið annað hráefni.
- Takið franskarnar út, bætið nachosflögum yfir, síðan kjúklingi og osti yfir og því næst rauðlauk, baunum, jalapeno og meiri rifnum osti.
- Bakið áfram í um 12 mínútur og toppið með lime bátum og kóríander.

Eeeeelska þessa bbq sósu!

Corona 0% er frábær kostur til að upplifa stemmingu án áfengis!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































