Í Hagkaup í Kringlunni leynist Sælkeraborð með miklu úrvali af ostum, fersk skornu áleggi og lúxus gúmelaði! Meðan ég beið í röðinni kom einmitt viðskiptavinur að kaupa nokkrar roastbeef sneiðar og þær litu ofboðslega vel út svo ég gæti klárlega þurft að kíkja fljótlega aftur í heimsókn!
Það er einfalt að raða saman fallegum ostabakka og þessi hér er með extra lúxus!

Sælkeraborðið er staðsett beint af augum þegar gengið er inn í Hagkaup í Kringlunni. Gengið er beint áfram eins innarlega í verslunina og hægt er og þar blasir þessi fegurð við.

Í kælunum í kringum Sælkeraborðið er síðan einnig að finna alls kyns gúrme vörur á borð við ólífur, sultur, osta, skinkur, kex og fleira! Á þessum bakka er Old Amsterdam, Brie og pylsa úr Sælkeraborðinu í bland við Brie, Hot Chili ost og hráskinku úr kælinum. Síðan tíndi ég til ávexti, ólífur, kex, sultur, súkkulaði, hnetur og annað gómsætt og raðaði saman á bakka.

Mér finnst alltaf best að blanda saman hörðum og mjúkum ostum, einhverju sætu, einhverju söltu, stökkt, mjúkt, sulta og það sem ykkur dettur í hug!
Mæli sannarlega með því að þið kíkið við í Sælkeraborðinu í næstu heimsókn í Hagkaup Kringlunni!


































