Einfaldir og fljótlegir pestósnúðar! Hægt er að leika sér með bragðtegundir bæði af rjómaosti og pestói og ég prófaði tvær mismunandi útfærslur sem báðar voru mjög góðar. Annars vegar notaði ég rjómaost með hvítlauk og kryddum með basilpestói og hins vegar rjómaost með chilli og pestó með sólþurrkuðum tómötum.
Fljótlegt og gott!

Pestósnúðar
- 1 x stórt upprúllað pizzadeig
- 2/3 dós Philadelphia rjómaostur (með hvítlauk eða chilli)
- ½ krukka Filippo Berio pestó (grænt eða rautt)
- Rifinn ostur
- Rúllið pizzadeiginu út og hitið ofninn í 200°C.
- Smyrjið deigið með rjómaosti og næst yfir með pestó.
- Stráið rifnum osti yfir og rúllið upp, skerið í 12 hluta.
- Raðið snúðunum á bökunarplötu, toppið með meiri osti og bakið í 18-20 mínútur eða þar til snúðarnir verða vel gylltir.
- Ég notaði rjómaost með hvítlauk með grænu pestói og rjómaost með chilli með rauðu pestói og gerði tvöfalda uppskrift (notaði 2 x pizzadeig).

Grænt eða rautt pestó, þitt er valið!

Bæði betra!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































