Ég elska að geta útbúið máltíð sem tekur um hálftíma að gera líkt og þessi hér! Það er svo mikil snilld að geta keypt sous vide kjúkling á þennan hátt og aðeins útbúið gómsætt meðlæti á meðan maður hitar hann!
Hér sjáið þið hversu einfalt þetta er og ekki skemmir fyrir hvað þetta er gott!

Kjúklingur og kryddgrjón
Fyrir um 4 manns
- 2 x hálfur Sous Vide kjúklingur frá Ali
- 280 g hrísgrjón
- 1 laukur
- 1 paprika
- Ólífuolía
- Salt, pipar, hvítlauksduft, paprikuduft, karrý
- 1 msk. fljótandi nautakraftur
- 650 ml vatn
- Hvítlauksbrauð
- Eldið kjúklinginn samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Ég lagði í heitt vatn í um 10 mínútur og síðan í 190° heitan ofn í um 20 mínútur og hann var virkilega djúsí og góður. Útbúið grjónin á meðan og hitið brauðið með í ofninum síðustu mínúturnar.
- Skerið lauk og papriku niður og steikið stutta stund við meðalhita upp úr ólífuolíu.
- Bætið þá meiri olíu í pottinn, kryddið eftir smekk (ég notaði mest af papriku, karrý og hvítlauksdufti), bætið grjónunum saman við og hrærið öllu saman stutta stund svo þau hjúpist kryddum.
- Hellið þá vatninu saman við og náið upp suðunni. Bætið fljótandi krafti í pottinn líka og lækkið síðan niður og leyfið að sjóða þar til þau eru orðin mjúk og djúsí.

Þessi kjúlli er ein mesta snilld sem ég hef prófað!

Grjónin eru djúsí og kjúklingurinn líka svo ég hef ekki verið að hafa neina sósu með þessu sérstaklega þó svo þið megið að sjálfsögðu bæta slíkri við.



































