Kvöldmatur sem er útbúinn á um 20 mínútum og öll fjölskyldan elskar, já takk!
Namm!

Tagliatelle Bolognese
Fyrir 5-6 manns
- Um 700 g nautahakk
- 2 gulrætur (rifnar)
- 1 laukur (saxaður)
- 2 x Heinz pastasósa með tómötum og basil
- 150 ml rjómi
- 500 g DeCecco tagliatelle pasta
- Parmesanostur
- Salt, pipar, paprika, ferskt basilika – krydd
- Filippo Berio ólífuolía
- Rífið gulrætur og saxið laukinn, mýkið í ólífuolíu á pönnu.
- Bætið hakkinu saman við og steikið vel, kryddið eftir smekk.
- Bætið pastasósum saman við og rjóma og leyfið að malla við vægan hita á meðan pastað sýður.
- Setjið tagliatelle á disk, hakkblöndu yfir og rífið síðan vel af parmesan yfir allt og saxið ferska basiliku yfir í lokin.

Þessi pastasósa er svo góð!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































