Steikt perlubygg með grænmeti og kjúkling



⌑ Samstarf ⌑
kjúklingur og grænmeti

Ég elska að ná að gera kvöldmat tilbúinn á hálftíma. Það voru margir sem óskuðu eftir einföldum og fljótlegum uppskriftum fyrir kvöldverð um daginn hjá mér á Instagram og ég er að gera mitt besta til að svara því kalli. Ég mun því halda áfram að koma með fljótlegar uppskriftir hingað inn!

Mmmmm…..

fljótlegur kvöldmatur

Steikt perlubygg með grænmeti og kjúkling

Fyrir um 4 manns

  • 3 x ½ Sous Vide kjúklingur frá Ali
  • 420 g perlubygg
  • 1 laukur
  • 1 rauð paprika
  • 1 kúrbítur
  • 2 msk. soyasósa
  • Ólífuolía
  • Salt, pipar, hvítlauksduft, paprikuduft
  • 1 krukka fetaostur
  1. Byrjið á því að hita kjúklinginn í pokanum í heitu vatni í um 15 mínútur í vaskinum.
  2. Hitið ofninn í 180°C.
  3. Skerið niður allt grænmeti og sjóðið byggið (með 1 msk. af salti í 1,25 l af vatni).
  4. Færið kjúklinginn úr pokunum og yfir á ofnskúffu, setjið í ofninn í 20 mínútur á meðan þið steikið grænmetið.
  5. Kryddið grænmetið eftir smekk og setjið vel af ólífuolíu. Hrærið síðan soðnu byggi saman við og bætið soyasósunni saman við og kryddið meira ef ykkur finnst þess þurfa.
  6. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn má setja fetaost yfir byggið og grænmetið (hella mestu olíunni af fyrst) og njóta saman.
hollt og gott í matinn

Sous Vide kjúklingurinn frá Ali er svo djúsí og góður að mér persónulega finnst ekki einu sinni þurfa sósu með þessum rétti en það mætti alveg bera kalda sósu fram með honum fyrir þá sem þurfa.

fljótlegur kvöldmatur

Fetaosturinn gerir steikta byggið extra djúsí og gott!

sous vide kjúklingur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun