Síðustu helgi var hálfgert vor í lofti og mér fannst tilvalið að byrja á páskauppskriftunum mínum. Það er góð tilbreyting frá lambinu að grilla nautasteik og almáttugur þessi matur var svo góður að þið verðið að prófa!
Mmmm….

Marineruð Ribeye steik og sveppasósa
Fyrir 4
Ribeye steik eldun
- 3-4 Ribeye steikur (eftir stærð)
- Caj P original grillolía
- Þerrið steikurnar og penslið með Caj P olíu á báðum hliðum, leyfið að marinerast í að minnsta kosti klukkustund (yfir nótt er líka í lagi).
- Grillið á meðalheitu grilli þar til æskilegum kjarnhita er náð. Munið að kjarnhiti hækkar um nokkrar gráður á meðan steikurnar hvíla. Við tökum af grillinu með kjarnhita í kringum 51-54°C eftir því hversu vel við viljum þær eldaðar, síðan er mikilvægt þær fái að standa í að minnsta kosti 10 mínútur.
Sveppasósa uppskrift
- 300 g blandaðir sveppir (kastaníu og venjulegir)
- 3 msk. smjör
- 1 msk. Filippo Berio ólífuolía
- 3 hvítlauksgeirar
- 150 ml vatn
- 2 msk. Oscar nautakraftur (fljótandi)
- 300 ml rjómi
- 40 g rifinn Parmareggio Reggiano ostur
- Maizena mjöl
- Svetta af Muga Reserva rauðvíni
- 1 msk. ferskt timian (saxað)
- Salt og pipar
- Sneiðið sveppina niður og steikið upp úr smjöri og ólífuolíu þar til þeir mýkjast, kryddið með salti og pipar.
- Rífið nú hvítlaukinn saman við og steikið áfram stutta stund.
- Næst má bæta vatni, nautakrafti, rjóma og parmesan osti saman við og leyfa aðeins að malla, þykkið með maizenamjöli eftir smekk.
- Í lokin má setja smá rauðvín saman við ásamt söxuðu timian og krydda eftir smekk með salti og pipar.
Annað meðlæti
- 2 sætar kartöflur
- Ólífuolía
- Salt og pipar
- Sneiðið kartöflurnar í þykkar sneiðar, penslið með ólífuolíu og kryddið með salti og pipar.
- Bakið við 200°C í um 40 mínútur eða þar til þær eru mjúkar í gegn.
- 12-16 ferskir aspasstönglar
- 2 msk. smjör
- Salt og pipar
- Rifinn Parmareggio Reggiano ostur eftir smekk
- Skerið trenaða hlutann af aspasnum og steikið við meðalhita upp úr smjöri þar til hann mýkist.
- Kryddið með salti og pipar og færið aspasinn síðan ofan á bökuðu sætu kartöfluna og toppið með vel af parmesan osti.
- Ferskt salat að eigin vali

Það er fátt betra en góð nautasteik og rauðvínsglas.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































