Hér er á ferðinni hollara nammi en margt annað og klárlega orkuríkara! Það er auðvelt að útbúa þessa mola og best finnst mér að skera þá niður í bita og eiga í frystinum til að laumast í einn og einn þegar sykurlöngunin hellist yfir.
Mmm…..

Döðlunammi
- 500 g ferskar döðlur
- Hnetusmjör (um 6 msk)
- 70 g Síríus rjómasúkkulaði
- 70 g Síríus suðusúkkulaði
- 50 g pistasíukjarnar
- 3 msk. kókosflögur
- Skerið í döðlurnar miðjar, opnið þær og fjarlægið steininn. Raðið þeim opnum, þétt saman á bökunarpappír.
- Leggið annan bökunarpappír ofan á og fletjið aðeins út með kökukefli, fjarlægið síðan pappírinn.
- Smyrjið hnetusmjöri yfir döðlurnar og næst bræddu súkkulaðinu. Geymið smá súkkulaði til að skreyta með í lokin.
- Saxið pistasíukjarna og stráið yfir ásamt kókosflögum.
- Frystið í um 30 mínútur og skerið svo í bita.
- Best er að geyma bitana síðan í góðu boxi í frystinum.

Elska þetta súkkulaði!



































