Þessar lundir eru undurgóðar og má nota bæði sem máltíð eða sem bita á smáréttahlaðborð. Það er auðvitað hægt að útbúa meðlæti eins og manni lystir en rjómaosturinn og beikonið gerir bitann að mínu mati fullkominn og snakkið var frábært með.
Mikið gott!

Beikonvafnar kjúklingalundir með rjómaosti
Um 12-14 stykki
- 1 poki Rose Poultry kjúklingalundir
- 1 pakki beikon
- 1 pakki Philadelphia rjómaostur með graslauk
- 1 pakki Philadelphia rjómaostur með chilli
- Salt og pipar
- Hitið ofninn í 170°C.
- Fletjið lundirnar út með kökukefli/öðru slíku.
- Smyrjið rjómaosti yfir þær miðjar (um 1 msk á hverja).
- Kryddið með salti og pipar og rúllið upp, vefjið síðan beikoni utan um hverja rúllu, stingið tannstöngli í gegn til að halda betur saman.
- Raðið á ofnskúffu og bakið í um 25 mínútur.
- Berið fram með uppáhalds Maarud snakkinu ykkar og Muga rósavíni.

Það mætti líka grilla þennan rétt og er ég viss um hann bragðast jafn vel ef ekki betur þannig!

Þetta þarf sannarlega ekki að vera flókið.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































