Ég er lengi búin að ætla að prófa að gera einhvern rétt með orzo pasta en óskalistinn er alltaf svo langur að þetta hefur tekið sinn tíma, haha! Ég rakst á svipaða uppskrift á netinu og ákvað að prófa og útfæra eftir mínu höfði og þetta var virkilega gott og skemmtileg tilbreyting frá hrísgrjónum eða öðru pasta.
Mæli með að þið prófið!

Orzo kjúklingaréttur
Fyrir 4-6 manns
- 700 g (1 poki) Rose Poultry kjúklingalundir
- 1 x laukur
- 4 hvítlauksrif
- 10 ferskir aspasstönglar
- 200 g orzo pasta
- 500 ml kjúklingasoð
- 2 tsk. hunangs dijon sinnep
- 200 ml rjómi
- 100 g Parmareggio parmesanostur
- 1 lúka spínat
- 2 sítrónur
- Salt, pipar og hvítlauksduft
- Ólífuolía til steikingar
- Steikið lundirnar upp úr ólífuolíu, kryddið eftir smekk og leggið síðan til hliðar.
- Bætið ólífuolíu á pönnuna og steikið saxaðan lauk, niðurskorinn aspas og rifin hvítlauksrif þar til það mýkist.
- Steikið pastað næst með á pönnunni stutta stund og bætið síðan kjúklingasoði og sinnepi saman við og leyfið að malla í nokkrar mínútur þar til pastað fer að mýkjast.
- Bætið þá rjóma, rifnum parmesanosti og spínati saman við og hrærið þar til kekkjalaust.
- Rífið börkinn af annarri sítrónunni og blandið saman við ásamt safanum úr henni. Skerið hina niður í sneiðar og bætið á pönnuna.
- Að lokum má kjúklingurinn fara aftur saman við og hitið aðeins saman, kryddið frekar ef ykkur finnst þess þurfa.

Einfalt og fljótlegt!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































