Allt sem er einfalt og gott slær í gegn! Hér kemur mjög fljótleg útgáfa af pylsuhornum með sinnepssósu. Fullkominn réttur til að grípa með á Októberfest eða í annan hitting!
Mmmm….

Pylsuhorn
16 stykki
- 1 x upprúllað pizzadeig
- 8 x pylsur
- Sesamblanda/beyglukrydd
- Egg
- Sinnepssósa (sjá uppskrift að neðan)
- Hitið ofninn í 200°C.
- Skerið pizzadeigið í tvo hluta.
- Skerið síðan í kross og aftur kross yfir hvorn hluta til að mynda 2 x 8 þríhyrnda hluta (þeir þurfa ekki að vera fullkomnir/beinir).
- Skerið pylsurnar í tvennt og rúllið þeim inn í deig (byrjið við breiðari endann á deiginu).
- Raðið á bökunarplötu, penslið með pískuðu eggi og stráið kornum yfir.
- Bakið í um 15 mínútur eða þar til deigið gyllist og pylsurnar dökkna örlítið.
- Berið fram strax með sinnepssósunni.
Sinnepssósa uppskrift
- 110 g Heinz majónes
- 1 msk. Heinz Mild sinnep
- 1 msk. Heinz tómatsósa
- 1 tsk. hvítlauksduft
- Salt, pipar, paprika eftir smekk
- Pískið allt saman og geymið í kæli fram að notkun.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































