Veðrið undanfarna daga hefur sagt að sumarið er á næsta leyti! Þá dettur maður í annan gír í eldhúsinu og þessi undursamlega suðræna ávaxta Sangria er fullkomin í næsta sumarpartý!
Einfalt að útbúa og svo ferskur og góður drykkur!

Suðræn Sangria
- 500 ml Muga hvítvín
- 300 ml appelsínu límonaði
- ½ appelsína
- ½ sítróna
- 1 lime
- ¼ ananas
- ½ mangó
- 6-10 jarðarber
- Mynta
- Klakar
- Skerið ávextina niður í litla bita.
- Blandið öllu nema klökum og myntu saman í karöflu/könnu.
- Fyllið glös með klökum, hellið Sangriu yfir og skreytið með myntu.

Mæli með þið prófið!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































