Kjúklingaréttur í ofni



⌑ Samstarf ⌑
ofnbakaður kjúklingaréttur

Það er svo gaman að prófa nýja kjúklingarétti. Rjómalagaðir og ofnbakaðir slíkir klikka hreinlega aldrei og hér er komin skemmtileg útfærsla af slíkum með ítölsku ívafi.

kjúklingaréttur í ofni

Mmmm þessi réttur var svo góður!

einfaldur kjúklingaréttur

Kjúklingaréttur í ofni með ítölsku ívafi

Fyrir um 3-4 manns

  • 6 kjúklingalæri (upplæri)
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 dós ítalskur smurostur (300 g) frá MS
  • 400 ml rjómi
  • 1 box (180 g) Piccolo tómatar
  • Fersk basilika
  • Ólífuolía og smjör til steikingar
  • Salt, pipar og kjúklingakrydd
  1. Hitið ofninn í 170°C.
  2. Brúnið kjúklingalærin upp úr blöndu af ólífuolíu og smjöri við meðalháan hita.
  3. Kryddið eftir smekk og brúnið vel á báðum hliðum, leggið næst í eldfast mót og útbúið sósuna.
  4. Saxið laukinn smátt og mýkið á pönnu upp úr smjöri og olíu. Kryddið með salti og pipar.
  5. Rífið hvítlaukinn saman við laukinn og steikið stutta stund til viðbótar og hellið næst helming rjómans á pönnuna.
  6. Bætið smurostinum næst saman við og hrærið þar til hann er bráðinn og bætið þá restinni af rjómanum út á og hrærið vel.
  7. Hellið yfir kjúklingalærin í fatinu, dreifið úr tómötunum yfir allt og bakið í ofni í um 25-30 mínútur.
  8. Berið fram með ferskri basiliku.
kjúklingaréttur í rjómasósu með smurosti

Mæli með smurostum í rjómasósu fyrir hina ýmsu ofnrétti, hvort sem þið eruð að gera fiskrétt, pastarétt, kjúklingarétt eða annað.

góður kjúklingaréttur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun