Hér er uppskrift sem mamma hefur eldað margoft í gegnum tíðina og kemur úr bókinni Matarlyst sem Osta- og smjörsalan gaf út á sínum tíma. Þetta lasagna er rjómakennt og ólíkt öllum öðrum og svo ofboðslega gott!

Ég má til með að gera langa sögu stutta í kringum þessa uppskrift! Ég bað mömmu um að senda mér þessa uppskrift en þá hafði hún Íris, hundasystir mín gætt sér á þessari bók ásamt fleirum og mamma miður sín að eiga hana ekki lengur því margar af hennar uppáhalds uppskriftum í henni. Ég ákvað því að kanna mátt samfélagsmiðla og óskaði eftir slíkri bók á Instagram hjá Gotterí. Það voru ótal manns sem áttu bókina og nokkrir sem buðu mér að eiga sitt eintak. Ég þáði því boðið hjá henni Soffíu Ófeigs, sótti bókina, setti á hana slaufu og færði mömmu hana. Við erum að tala um líklega 20-25 ára gamla bók svo þetta var virkilega skemmtilegt, og hér fáið þið eina dúndurgóða!

Lasagna eins og hjá mömmu
Fyrir 5-7 manns
- 10-12 lasagna plötur
- 600 g nautahakk
- 1-2 laukar (eftir smekk)
- 70 g smjör
- 8 msk. tómatsósa
- 300 ml rjómi frá Gott í matinn
- 3 tsk. oregano krydd
- Salt og pipar eftir smekk
- Rifinn Gouda (26%) ostur frá Gott í matinn
- Hvít sósa (sjá uppskrift hér að neðan)
- Leggið lasagna plöturnar í bleyti í kalt vatn á meðan annað er undirbúið.
- Hitið ofninn í 200°C og smyrjið eldfast mót að innan með smjöri.
- Saxið laukinn smátt og steikið upp úr 70 g af smjöri þar til hann mýkist, bætið þá hakkinu á pönnuna og steikið við háan hita þar til það er vel brúnað og allur vökvi hefur gufað upp, kryddið eftir smekk.
- Bætið næst tómatsósu, rjóma og oregano á pönnuna, blandið vel saman og lækkið síðan hitann á meðan þið útbúið hvítu sósuna (sjá uppskrift hér að neðan).
- Raðið síðan í eldfasta mótið; hvít sósa, lasagna plötur, hvít sósa, hakk (helmingurinn), hvít sósa, lasagnaplötur, hvít sósa, hakk (hinn helmingurinn), hvít sósa, lasagnaplötur, hvít sósa og loks vel af rifnum Gouda osti (26%).
- Setjið síðan í ofninn í um 25 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast. Gott er að bera lasagna fram með fersku salati og baguette brauði/hvítlauksbrauði.
Hvít sósa
- 70 g smjör
- 60 g hveiti
- 800 ml nýmjólk
- 1 tsk. salt
- Bræðið smjörið í potti og sáldrið hveitinu þá saman við til að útbúa smjörbollu.
- Bætið mjólkinni saman við hægt og rólega og pískið saman allan tímann, hrærið vel þar til þykkur jafningur hefur myndast og slökkvið þá á hellunni og saltið.

Rjóminn gerir þetta lasagna einstakt og mikið sem það er gott!



































