Það er orðið ansi langt síðan Offi vinur okkar sendi mér hlekk á svipaða snúða sem Faby konan hans bakaði og hann sagði ég yrði að prófa! Það er síðan stundum þannig að góðar hugmyndir fara í bunkann og eru þar lengur en til stendur, smá lúxusvandamál að hafa óskalista af uppskriftum sem sér aldrei fram úr, hahaha!

Í dag voru stelpurnar heima því skólanum var aflýst vegna veðurviðvörunnar. Ég ákvað því að prófa eitthvað af óskalistanum og urðu þessir snúðar fyrir valinu. Ég blandaði saman uppskrift sem hann sendi á mig og breytti aðeins og notaði kremið sem ég elska mest því stelpurnar vilja það frekar en rjómaostakremið. Ég sé aldeilis ekki eftir því og þó það séu hér nokkrar snúðategundir þá má alltaf gera tilraunir á nýjum!

Undurmjúkir amerískir kanilsnúðar
Deig
- 250 ml nýmjólk
- 80 g sykur
- 1 pk. þurrger (um 12 g)
- 2 egg
- 70 g smjör (brætt)
- 540 g hveiti
- 1 tsk. salt
- Hitið mjólkina þar til hún er ylvolg, bætið þá sykrinum saman við og hrærið þar til hann leysist upp.
- Bætið þurrgerinu nú saman við mjólk og sykur, hrærið og leyfið því að standa í um 5 mínútur til að virkja gerið.
- Setjið mjólkurblönduna í hrærivélarskálina og notið krókinn til að byrja að blanda saman.
- Bætið eggjum og bræddu smjöri saman við og næst hveiti og salti.
- Hnoðið saman en leyfið deiginu að vera eins klístruðu og þið komist upp með. Penslið skál að innan með matarolíu og veltið deigkúlunni upp úr henni áður en þið setjið viskastykki yfir og hefið í 1 klukkustund.
- Stráið þá smá hveiti á borðið og ýtið deiginu út í c.a 40 x 50 cm og setjið fyllinguna ofan á.
Fylling
- 230 g púðursykur
- 4 tsk. kanilsykur
- 70 g brætt smjör
- 200 ml rjómi
- Hrærið púðursykur og kanil saman.
- Penslið deigið með smjörinu og stráið sykurblöndunni jafnt yfir allt.
- Rúllið þétt upp og skerið niður í 12 jafnar einingar.
- Smyrjið skúffukökuform að innan með smjöri og raðið snúðum 3 x 4 í það.
- Setjið aftur viskastykki yfir og leyfið að hefast í 45 mínútur.
- Hitið ofninn á meðan í 170° C.
- Bakið snúðana síðan í 10 mínútur, takið þá út og hellið rjómanum jafnt yfir þá alla (rúmlega ein matskeið yfir hvern) og bakið aftur í 12-15 mínútur eða þar til þeir eru orðnir vel gylltir.
- Útbúið kremið á meðan og smyrjið því yfir um leið og snúðarnir koma úr ofninum.
Krem
- 220 g flórsykur
- 70 g smjör (brætt)
- 3 msk. rjómi
- 2 tsk. vanilludropar
- Pískið allt saman og smyrjið yfir snúðana þegar þeir koma úr ofninum.

Í þessum snúðum er nefnilega rjóma hellt yfir deigið á meðan þeir eru að bakast svo þeir verða extra djúsí og góðir. Að öðru leyti eru þeir svipaðir klassískum amerískum snúðum sem allir elska!


































